- 4 vikna fjarnámskeið með vikulegum æfingaskilum -
Námskeiðið er sjálfstætt framhald af hraðlestrarnámskeiði en ekki er þörf á því að hafa setið hraðlestrarnámskeið til að hafa not af þessu námskeiði. Það er þó engin spurning að þeir sem hafa setið hraðlestrarnámskeið fá meira út úr því vegna þess að hér er farið enn ítarlegar í þær tímastjórnunarleiðir sem bent er á þar. Námskeiðið er kennt í fjarnámi hér á kennsluvef Hraðlestrarskólans.
...er að gefa nemendum kost á að tileinka sér markvissari tímastjórnunarleiðir, þekkja tímaþjófana sína, kunna að tímasetja verkefni og gera sér betur grein fyrir hvernig skipulag henti þeim t.d. með því að nota forrit eins og Google Calender, Microsoft Outlook og iMindMap til að auðvelda daglegt skipulag og verkefnavinnu. Í raun að gera nemanda kleift að takast á við hvaða nám eða verkefni sem er og sækja 2-4 aukatíma á hverjum degi - með betri tímavenjum.
Nemandi setur upp sína eigin dagskrá og er að festa hana í sessi í gegnum allt námskeiðið. Nemandi notar sitt eigið námsefni, sína stundaskrá og vinnur það heimanám sem honum hefur verið sett fyrir í skólanum - hann er því að slá tvær flugur - læra fyrir námskeiðið og undirbúa sig fyrir skólann.
Á námskeiðinu lærir þú: