NÁMSTÆKNINÁMSKEIÐ! | FRÍnámskeið!
HUGARKORTIN - og glósurnar!
7 einföld skref í að setja upp HUGARKORT* - til að auðvelda glósutöku, verkefnavinnu eða ritgerðarsmíð.
- Smelltu þér á listann - og kræktu í 14 áhrifarík ráð til að HÁMARKA árangur þinn á næstu önn!
* Á námskeiðinu nota ég AYOA hugarkortaforritið/appið sem hægt er að nálgast FRÍTT HÉR!
Nú styttist óðum í að allt verði komið í loftið! - Verður þú með?00
Days
00
Hours
00
Mins
00
Secs
Ertu með réttu verkfærin til að hafa glósur - hnitmiðaðar og skýrar - sem auðvelda upprifjun - og festa í sessi aðalatriði - fyrir öll lestrarverkefnin, verkefnaskilin, ritgerðarskilin, og prófaundirbúninginn?
Skoða þetta betur
Hvað er innifalið?
Þú færð póströð um 14 áhrifarík ráð til að HÁMARKA árangur þinn á næstu önn! - með skýrum skrefum!
Sjálfsprófin til að setja stefnuna, skrefin til að setja markmiðin og tímaáætlunina!
Vettvanginn til að spyrja ráða og fá réttu svörin - þegar þú þarft á þeim að halda!
Fáðu réttu verkfærin til að ná árangri í námi!
Innifalið í FRÍ-námskeiðinu eru fyrstu skrefin þín til að hámarka árangur þinn á næstu önn, skoðum m.a. af hverju hugarkortin virka svona vel, hvernig setur þú það upp, hvað þarftu að hafa í huga þegar þú glósar - og það byrjar allt með einfaldri póströð með 14 áhrifaríkum ráðum sem hjálpa þér af stað. Hver póstur inniheldur skýr skref til að bæta námsvenjur þínar og auka sjálfstraustið í námi.
Allt að verða klárt! - Verður þú með?
Hver er námsþjálfarinn?
Ég er Jón Vigfús
Ég er skólastjóri og aðalkennari Hraðlestrarskólans, fyrirlesari og metsöluhöfundur. Ég hef ekki gert neitt annað í 19 ár en að hjálpa fólki að bæta lestrarfærni og efla námstæknikunnáttu sína og hef kennt rúmlega 18.000 manns á þeim tíma.
Áhugi minn á hraðlestrartækninni og leiðum til að auðvelda sér nám kom til er ég var við nám í Viðskiptalögfræði á Bifröst og sá hvernig hraðlestrartæknin auðveldaði mér verulega að komast yfir allt lesefni í náminu.
Á meðan að ég var í námi á Bifröst – tók ég að mér að vera stuðningsfulltrúi nemenda og var sem slíkur að aðstoða samnemendur við námið. Ég hef einnig haldið fjölda námstækninámskeiða undanfarin ár.
Ég hef sérhæft mig í að þjálfa námsmenn í að tækla þær námsvenjur sem eru að halda aftur af þeim. Allar venjur, lestrarvenjur, tímavenjur, glósuvenjur og námsvenjur almennt – eiga sinn líftíma.
Í 90% tilfella eru það þessar venjur sem halda aftur af námsfólki. Öllum venjum er hægt að breyta og móta að vild. Þeim á að breyta þegar þeirra líftími er liðinn.