Hraðlestur fyrir alla! - 6 klst. fjarnámskeið + 7 daga æfingaferli

Hér stjórnar ÞÚ ferðinni – hvenær þú byrjar – hvar þú ert – þú lærir hraðlestur á þeim tíma dags sem hentar þér!

Hér finnur þú um 360 mínútur af grunnkennslu í gegnum myndskeið - ásamt prófum, æfingum og PDF-skjölum - sem hjálpa þér að lesa hraðar og markvissar í skáldsögum.

+ 30 mín. einkatími með kennara á kennsluvef á fyrstu 48 tímunum til að koma þér af stað með öll skrefin á hreinu!

Einföld skref og æfingar til að bæta lestrarfærni þína til frambúðar þannig að þú hafir ekki bara gaman af því að taka upp bók og lesa þér til ánægju - heldur hafir öll þau verkfæri sem þú þarft til að njóta enn fleiri bóka í framtíðinni!

>> JÁ TAKK - Skrá mig!

Sigurjón R.,

- 40 ára Tæknifræðingur.

"Ef þú setur þér markmið nærðu því ef þú hefur verkfærin. Þau hef ég nú fengið á Hraðlestrarnámskeiðinu."

Þórdís Edda,

- 35 ára Kennari.

"Ég var ekki viss um á hverju væri von, en námskeiðið kenndi mér nýja tækni sem mun nýtast mér vel í námi og starfi í framtíðinni. Ég er mjög ánægð með árangurinn."

65+

ára reynsla af tækninni erlendis!

45+

ára reynsla á Íslandi!

19+

ára reynsla kennara!

18.000+

nemendur setið námskeiðið!

Allt sem þú þarft til að lesa meira af skáldsögum!

Er langur listi af bókum enn ólesinn? Langar þig að bæta lestrarfærnina? Hefur þú gaman af hljóðbókum - en átt erfitt með að festa hugann við bækur þegar þú lest þær sjálfur? Þá er þetta námskeiðið fyrir þig. Á þessu námskeiði útskýri ég fyrir þér hvernig þú vilt beita þér þegar þú lest skáldsögur og af hverju það skiptir máli fyrir þig. Hvernig þú bætir lestraránægjuna og heldur betur athygli og einbeitingu í lestri á skáldsögu. Hér leiði ég þig í gegnum einfaldar lestraræfingar sem eru ekki bara að auka hraðann þinn heldur gera hverja bók skemmtilegri. Ég leiði þig síðan í gegnum það einfalda ferli að fara að lesa fleiri bækur - helst 1-2 bækur á viku - ef ekki fleiri!

Á þessu 6 klst. hraðlestrarnámskeiði lærir þú ALLT sem þú vildir vita um hraðlestur í skáldsögum og hvernig þú getur margfaldað lestrarhraðann þinn!

Markmið námskeiðsins okkar er mjög einfalt - og það er að gefa þér einföld skref til að bæta lestrarfærni þína til frambúðar þannig að þú hafir ekki bara gaman af því að taka upp bók og lesa þér til ánægju - heldur hafir öll þau verkfæri sem þú þarft til að lesa mun fleiri bækur í framtíðinni! - Hér finnur þú að öllu leyti sömu upplýsingar og nemendur á staðnámskeiðum fá - en hér er ég ekkert að skoða lestur í námsefni, námstækni, glósur - heldur horfi eingöngu til lesturs í einföldu skemmtiefni og skáldsögum!

 

Vilhjálmur Magnússon,

 - 34 ára sjómaður.

"Á fjórum tímum náði ég að tvöfalda lestrarhraðann og jók skilning."

Ólöf Huld,

 - 38 ára skráningarfulltrúi.

"Fyrir námskeiðið hafði ég litla trú á að ég gæti aukið lestrarhraðann en eftir sitja námskeiðið er ég viss um að ég eigi eftir að geta aukið hraðann enn meira."

Jóhann Magnússon,

 - 43 ára Skipstjóri.

"Góð og hnitmiðuð kynning, sem veitir manni trú á að hægt sé að ná verulegum árangri."

Fullkomið til að ná fullkomnu valdi á hraðari og markvissari lestrartækni!

Þetta 6 klst. fjarnámskeið hentar fullkomlega fyrir sem vilja ná betra valdi á lestrarvenjum sínum og uppfæra þær í takt við nútímaþarfir sínar. 

Allir sem hafa áhuga á því að bæta lestur sinn og lestrarvenjur munu finna einföld skref sem hjálpa þeim með markvissum daglegum æfingum að bæta lestrarfærni þeirra til frambúðar.

Hér er tekið á lestri í skáldsögum, tímaritum og einföldum textum - á pappír eða rafrænt á tölvuskjá, lestölvum, símum eða spjaldtölvum.

Hafðu í huga að hér förum við ekkert í lestur á vinnutengdu lesefni, námsefni, fræðsluefni,  handbókum, skýrslum, tölvupóstum, samningum, fundargerðum, námstækni, glósutækni, tímastjórnun  - það er allt efni sem við tökum fyrir í 6 vikna fjarnáminu!

 

Hvað er innifalið í fjarnámskeiðinu - HRAÐLESTUR - fyrir alla?

Steindór I. Snorrason

- 36 ára.

"Líst ákaflega vel á þetta. Hafin er hjá mér ferð sem á eftir að skila sér í miklu fleiri lesnum bókum."

Hér lærir þú...

...hvernig þú nærð margföldum lestrarhraða á nokkrum vikum og færð allan þann aðgang að kennara sem þú þarft til að festa það í sessi til frambúðar!

Hér lærir þú...

...öll skrefin sem þú þarft að fylgja til að halda meiri athygli, einbeitingu, lesskilningi og lestraránægju í skáldsögum!

Hér lærir þú...

...hvernig þú viðheldur margföldum lestrarhraða í framtíðinni og af hverju allir hafa tök á því að lesa miklu hraðar en þeir gera í dag!

KENNARI SKOÐAR:

  • Á fyrstu 48 tímunum ertu að fá 30 mín. einkatíma á vef með kennara - til að leiða þig af stað.
  • Af hverju við lesum almennt svona hægt
  • Hvernig hægt er að vel rúmlega tvöfalda lestrarhraða án þess að skilningur detti niður.
  • Af hverju lestrarskilningur og lestraránægja eykst við að lesa hraðar.
  • Skoðar lestur mismunandi lesefnis.
  • Lestur af tölvuskjá,  spjaldtölvum, lestölvum og símum.

HAFÐU Í HUGA:

  • Það skiptir ekki máli hve hratt eða hægt þú lest í dag!
  • Það skiptir ekki máli hvort þú lest mikið eða lítið í dag!
  • Það skiptir ekki máli hvort að einhver lestrarörðugleikar - líkt og lesblinda eða athyglisbrestur - er að trufla þig í dag?

Allir geta lært markvissari leiðir að því að vinna úr sínum texta.

NÁMSKEIÐIÐ HENTAR FYRIR...

Alla (16 ára til 94 ára), sem vilja almennt lesa mikið og bæta lestrarfærnina sína með einföldum æfingum.

Kennsluform:

  • Kennt á kennsluvef Hraðlestrarskólans
  • 30 mín. Einkatími á fyrstu 48 tímunum til að koma þér rétt af stað.
  • 2 x próf - PDF-texti + spurningar - til að mæla árangur æfinga.
  • 4 x hraðlestraræfingar - grunnæfingar fyrir byrjendur.
  • 7 daga æfingarferli útskýrt og ítarlega útlistað.

HEIMANÁM OG ALGENGUR ÁRANGUR:

Gert er ráð fyrir að 20-30 mínútna daglegum heimaæfingum í lesefni að eigin vali. Ég mæli þó með 40-60 mín. æfingum fyrir þá sem vilja ná hámarksárangri á ferlinu. Lesið er samkvæmt æfingakerfi sem útlistað er í námskeiðsgögnum á kennsluvef.

Algengur árangur: 

Tvöföldun til þreföldun á lestrarhraða, 10-15% aukning á skilningi.

>> Almennt verð: 39.500 kr.*

*Velflest stéttarfélög greiða hluta af námskeiðagjöldum.

Innifalið í námskeiðagjaldi..
Ítarleg námsgögn sem hægt er að nota eftir námskeið til að viðhalda árangri og halda áfram æfingum, mikill aðgangur að kennara á meðan að námskeiði stendur í gegnum kennsluvef, aðgangur að kennsluvef með gögnum og æfingum á netinu, aðgangur að kennara eftir að námskeiði lýkur og æviábyrgð sem þýðir að nemandi getur endurtekið námskeiðið eins oft yfir ævina og hann telur þörf.

Sigríður Poulsen

- 53 ára fulltrúi.

"Frábært, ef ég get tvöfaldað, og rúmlega það, lestrarhraða minn á 4 tímum, er bara hægt að gera kröfu á sjálfa mig um helmingi meir á næstu 2 vikum."

Finnbogi Helgason

- 60 ára Tannsmiður.

"Spennandi námskeið sem ég hefði átt að fara á fyrir löngu. Hlakka til að takast á við lesturinn í framtíðinni."

Hraðlestrarskólinn ábyrgist árangur þinn!

Öllum námskeiðum Hraðlestrarskólans fylgir ábyrgð - af því að þú átt það skilið!

100% VEFÁBYRGÐ

Ef þú hefur setið námskeiðið - tekið allar æfingar og próf - sinnt 30-40 mínútna daglegum æfingum í allavega 14 daga samfellt - skilað daglega inn árangri í æfingaferlinu - og hefur ekki enn náð að TVÖFALDA lestrarhraða frá fyrsta prófinu - þá tryggir VEFÁBYRGÐIN þér að sækja fyrri dag (laugardag) á helgarnámskeiði - án þess að greiða aukalega fyrir það!ÁRANGURStrygging fyrir þig!

100% ÆVIÁBYRGÐ

Þú getur rifjað upp og óskað eftir að námskeiðið verði opnað fyrir þig - eins oft og þú vilt - til að bæta árangur enn frekar - í framtíðinni!

Eftir hverju ertu að bíða? SKRÁÐU ÞIG NÚNA og TVÖFALDAÐU lestrarhraðann þinn strax í DAG!

  • Er hár bókastafli á náttborðinu?

  • Er mikið ólesið í bókahillunni?

  • Er Kiljan-safnið enn ólesið?

  • Ertu búin/-n að lesa 100 bestu bækur allra tíma?

  • Ef ekki - stígðu þá skrefið - NÚNA!

Hraðlestur fyrir alla!

- 6 klst. fjarnámskeið + 7 daga æfingaferli

 Markmið námskeiðsins okkar er mjög einfalt - og það er að gefa þér einföld skref til að bæta lestrarfærni þína til frambúðar þannig að þú hafir ekki bara gaman af því að taka upp bók og lesa þér til ánægju - heldur hafir öll þau verkfæri sem þú þarft til að tækla kröfuhart nám og starf í framtíðinni!

Byrjaðu STRAX í dag að bæta lestrarfærnina þína!

>> JÁ TAKK - skrá mig NÚNA!

María Kristín Jónsdóttir.

57 ára, starfsmaður á hjúkrunarheimili.

"Ég hef þrisvar sótt námskeið hjá Hraðlestrarskólanum. Fyrsta skiptið var ég á þriggja vikna námskeiði. Annað skiptið nýtti ég mér "æviábyrgðina" og fór á ókeypis upprifjunarnámskeið. Í þriðja skiptið sótti ég sex vikna fjarnámskeið. Þegar ég mætti í fyrsta tímann, hjá Hraðlestrarskólanum, las ég um 250 orð á mínútu. Með því að tileinka mér nýja tækni náði ég að tvöfalda lestrarhraðann og núna, eftir þrjár námslotur, hjá Hraðlestrarskólanum, get ég, á góðum degi, lesið þúsund orð á mínútu. Þótt ég sé að lesa mjög krefjandi texta fer ég sjaldan niður fyrir 600 orð á mínútu og íslenskar skáldsögur les ég, að jafnaði, á a.m.k. 900 orða hraða á mínútu. Ég get vitnað um það að hraðlestrartæknin virkar og Jón Vigfús kemur henni til skila með miklum eldmóð. Takk, kærlega, fyrir mig."