6 VIKNA EINKAKENNSLA Í FJARNÁMI
Lestrarhestar - mitt barn les!
- Hvernig örvar þú og glæðir lestrargleði um leið og þú ýtir undir meiri lestrarfærni hjá barninu þínu?
Einkakennsla í fjarnámi ætlað foreldrum - en hentar hverjum þeim sem vill ýta undir lestur ungra barna.
- Viltu að barnið þitt lesi meira?
- Viltu að barnið þitt lesi sér til skemmtunar?
- Skipta lestrarvenjur barnsins þíns þig máli?
- Viltu að ég kenni barninu fyrstu skrefin
- Ertu að velta fyrir þér hvernig þú getur örvað og hvatt barnið þitt til að lesa meira?
- Viltu ítarlegar leiðbeiningar um það hvernig þú færð barnið þitt til að njóta þess að lesa mikið meira?
Ef að þú getur sagt - JÁ! - við einhverri af þessum spurningum þá gæti þessi 6 vikna EINKAKENNSLA um lestur barna verið nákvæmlega það sem þig vantar.
SKRÁ MIG NÚNA!Í myndskeiðinu að ofan er Jón Vigfús Bjarnason, kennari og Skólastjóri Hraðlestrarskólans - að tala um sama efni - en fyrir 12 vikna hópnámskeið í fjarnámi.
14+ ára reynsla!
Þetta námskeið er byggt á 14 ára reynslu minni að kenna rúmlega tvö þúsund 7-12 ára börnum að bæta lestrarfærni sína og njóta þess að lesa meira!
19 ára reynsla!
Þetta námskeið er byggt á 19 ára reynslu minni að kenna rúmlega 18.000 manns - allt frá 7 ára til 94 ára - að lesa hraðar og markvissar í öllu lesefni!
45+ ára reynsla!
Þetta námskeið byggir á 45 ára gömlum grunni Hraðlestrarskólans og nýtir margreyndar aðferðir við þjálfun og æfingar á betri lestrarfærni.
65+ ára reynsla!
Þetta námskeið byggir á rúmlega 65 ára reynslu af notkun hraðlestrartækninnar um allan heim - við að auka lestrarhraða og bæta almenna lestrarfærni.
Viltu að barnið þitt lesi meira?
Það skiptir engu máli hver lestrarfærni barnsins er þegar það kemur á námskeiðið hjá okkur - því þessar einföldu æfingar sem það lærir - hjálpa því - óháð lestrarörðugleikum s.s. lesblindu, athyglisbrest, ADHD eða hæglæsi.
Stór hluti þeirra barna sem koma á námskeiðið - eru ekki spennt að koma á lestrarnámskeið - en þegar þau sjá hraðatölur sínar eftir fyrstu æfingu - á fyrstu 15 mínútunum á námskeiðinu - þá vilja þau meira.
>> Á þessu fjarnámskeiði kenni ég þér þessar lestraræfingar - þannig að þú getur hjálpað þínu barni/börnum að bæta lestrarfærnina!
Ég þarf að ná til þeirra miklu fyrr!
Þúsundir nemenda og rúmur áratugur að kenna fólki á öllum aldri hefur í raun bent mér á einn sannleik. Ég þarf að ná til barnanna fyrr - áður en þau byrja að festa í sessi slæmar lestrarvenjur. Þegar ég varð afi þá fór ég líka að velta fyrir mér hvernig ég náði að ala upp tvo virka bókaorma - hvað gerði ég rétt! Hverju myndi ég breyta - bæta og gera betur - miðað við það sem ég hef lært og lesið á undanförnum tveimur áratugum eftir að ég byrjaði að ala upp bókaorma.
Á námskeiðinu mun ég benda þér á hvað ég gerði og líka hvað ég hefði gert - miðað við það sem ég veit í dag!
Margra ára reynsla - uppfærð!
Námskeið Hraðlestrarskólans hef ég uppfært árlega miðað við nýjustu gögn, bækur, skýrslur og fræði um lestur almennt, ásamt því hvernig hugur og augu okkar starfa.
Kunnátta okkar í dag um starfsemi heilans og augna og hvernig við lesum er margfalt meiri en bara fyrir 5 árum síðan - og nýjar rannsóknir stöðugt í gangi.
Á námskeiðinu mun ég benda þér á hvaða bækur ég mæli almennt með - er tengjast lestri og starfsemi hugans.
Vikulega tek ég hluta af veffundi í að:
- Útskýra hvernig hægt er að glæða áhuga barns á lestri og sögum - miðað við hvert ár. Td. í tíma eitt skoðum við hvað við getum gert á meðgöngu og á fyrsta ári barnsins. Á veffundi tvö tökum við síðan hvernig við hjálpum tveggja ára börnum o.s.frv.
- Tryggja það að þín kunnátta og þínar lestrarvenjur séu uppfærðar - og að þú sért hvatning fyrir börn í kringum þig til að lesa meira.
- Hluti af tímanum fer síðan í að leiða barnið þitt - 7-12 ára - í gegnum fyrstu skrefin.
Vikulega tek ég hluta af veffundi í að:
- Taka fyrir þær bækur sem ég vísa í á námskeiðinu, hvað þær kenna og útskýra - og af hverju þú ættir að lesa þær.
- Kynna fyrir þér hvaða 12 reglur ég kenni 10-12 ára börnum á námskeiðinu - Hraðlestrarkrakkar.
- Kynna fyrir þér hvaða 12 reglur ég mæli með að foreldrar tileinki sér til að hvetja börn til að lesa meira.
- Kynni líka fyrir þér 12 áhrifamiklar lestrarvenjur hjá afburða lesendum.
- + og margt, margt fleira.
Algengar spurningar:
Hve langt er námskeiðið?
Í hvað get ég notað það sem ég læri á námskeiðinu?
Af hverju að kenna foreldrum - en ekki krökkum beint?
Er þetta námskeið bara fyrir foreldra?
Ef ég á barn sem er ekki byrjað að lesa?
* – Velflest stéttarfélög greiða hluta af námskeiðagjöldum.
Innifalið í námskeiðagjaldi..
Ítarleg námsgögn sem hægt er að nota eftir námskeið til að viðhalda árangri og halda áfram æfingum, mikill aðgangur að kennara á meðan að námskeiði stendur í gegnum kennsluvef, aðgangur að kennsluvef með gögnum og æfingum á netinu, aðgangur að kennara eftir að námskeiði lýkur og æviábyrgð sem þýðir að nemandi getur endurtekið námskeið eins oft yfir ævina og hann telur þörf.
6 VIKNA EINKAKENNSLA Í FJARNÁMI
Lestrarhestar - mitt barn les!