AFTUR í nám! | FRÍnámskeið!

Ertu á leið í nám aftur eftir langt hlé?

Hvenær uppfærðir þú námsvenjur þínar síðast?

 - Smelltu þér á listann - og kræktu í 7 áhrifarík ráð þegar þú ert að fara aftur í nám eftir langt hlé!

 

Nú styttist óðum í að allt verði komið í loftið! - Verður þú með?

00

Days

00

Hours

00

Mins

00

Secs

Ætlar þú að taka námsferilinn þinn í eigin hendur?

Skoða þetta betur

Hvað er innifalið?

Þú færð póströð um 7 áhrifarík ráð þegar þú ert að fara aftur í nám eftir langt hlé! - með skýrum skrefum!

Sjálfsprófin til að setja stefnuna, skrefin til að setja markmiðin og tímaáætlunina!

Vettvanginn til að spyrja ráða og fá réttu svörin - þegar þú þarft á þeim að halda!

Fáðu réttu verkfærin til að ná árangri í námi!

Innifalið í FRÍ-námskeiðinu eru fyrstu skrefin þín til að hámarka árangur þinn á næstu önn og það byrjar allt með einfaldri póströð með 7 áhrifaríkum ráðum sem hjálpa þér af stað. Hver póstur inniheldur skýr skref til að uppfæra námsvenjur þínar í takt við nútíma námskröfur - gera fókus í námi skýrari, lágmarka áhættu á streitu með markmiðasetningu og betri tímastjórnun - sem um leið ýtir undir aukið sjálfstraust í upphafi náms. 

 

Allt að verða klárt! - Verður þú með?

Hver er námsþjálfarinn?

Video Poster Image

Ég er Jón Vigfús

Ég er skólastjóri og aðalkennari Hraðlestrarskólans, fyrirlesari og metsöluhöfundur. Ég hef ekki gert neitt annað í 19 ár en að hjálpa fólki að bæta lestrarfærni og efla námstæknikunnáttu sína og hef kennt rúmlega 18.000 manns á þeim tíma.

Áhugi minn á hraðlestrartækninni og leiðum til að auðvelda sér nám kom til er ég var við nám í Viðskiptalögfræði á Bifröst og sá hvernig hraðlestrartæknin auðveldaði mér verulega að komast yfir allt lesefni í náminu.

Á meðan að ég var í námi á Bifröst – tók ég að mér að vera stuðningsfulltrúi nemenda og var sem slíkur að aðstoða samnemendur við námið. Ég hef einnig haldið fjölda námstækninámskeiða undanfarin ár.

Ég hef sérhæft mig í að þjálfa námsmenn í að tækla þær námsvenjur sem eru að halda aftur af þeim. Allar venjur, lestrarvenjur, tímavenjur, glósuvenjur og námsvenjur almennt – eiga sinn líftíma.

Í 90% tilfella eru það þessar venjur sem halda aftur af námsfólki. Öllum venjum er hægt að breyta og móta að vild. Þeim á að breyta þegar þeirra líftími er liðinn.